Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   fim 26. nóvember 2020 13:30
Magnús Már Einarsson
Braut glas og borðaði það
Mynd: Getty Images
Pólski varnarmaðurinn Marcin Wasilweski hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna fertugur að aldri en hann hefur undanfarið spilað með WislA Krakow í heimalandinu.

Wasilewski var harður í horn að taka á ferli sínum en hann er sagður íhuga að skipta um íþrótt og fara að æfa bardagaíþróttir.

Wasilewski var enskur meistari með Leicester árið 2016 en í grein um hann hjá The Athletic rifjar fyrrum liðsfélagi hans, Dean Hammond, upp áhugaverða sögu af honum.

„Þetta var eftir leik gegn Doncaster (árið 2013). Við vorum á mjög fínum veitingastað sem Wes Morgan hafði bókað," sagði Hammond.

„Við sátumst niður til að fá okkur drykki og ég man að afgreiðslan var hæg svo við fengum okkur nokkra drykki. Ég veit ekki af hverju en hann braut glasið sitt og byrjaði að borða það! Hver er þessi karakter?"
Athugasemdir
banner
banner
banner