Kvennalið Benfica var stofnað 12. desember 2017 og leikur í B-deildinni í Portúgal.
Benfica er stórlið í Portúgal, en kvennaliðið er gjörsamlega að tæta í sig B-deildina. Í gær vann Benfica 32-0 sigur á CP Pego í 15. umferð deildarinnar. Staðan var 14-0 í hálfleik. Þetta er nýtt met í portúgölskum kvennafótbolta.
Benfica stefnir með hraði upp í efstu deild en liðið hefur unnið alla sína leiki á tímabilinu. Liðið hefur spilað 16 leiki, unnið þá alla, skorað 293 mörk og ekki fengið á sig neitt.
Hreint út sagt ótrúleg tölfræði.
Á meðal leikmanna Benfica er Rilany Aguiar da Silva, fyrrum leikmaður Grindavíkur.
Benfica women’s first season in the Portuguese second division 😲 pic.twitter.com/jug48morWH
— ESPN UK (@ESPNUK) January 26, 2019
Athugasemdir