Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 27. janúar 2020 20:15
Aksentije Milisic
Roger Ibanez kominn til Roma (Staðfest)
Ibanez (til vinstri).
Ibanez (til vinstri).
Mynd: Getty Images
Brasilíski varnarmaðurinn Roger Ibanez Da Silva, hefur gengið til liðs við Roma frá Atalanta. Samningurinn er gerður sem 18 mánaða lánssamningur en Roma er með forkaupsréttindi á leikmanninum.

Atalanta mun þá fá 10% af verði leikmannsins verði hann seldur áfram frá Roma fyrir árið 2024.

Ibanez, sem er 21 árs gamall, kom til liðs við Atalanta frá Fluminese árið 2019 en hefur aðeins ná að spila einn leik með félaginu. Hann á þá fjóra leiki með undir 23 ára landsliðið Brasilíu.

„Roma hefur allt sem ég leitast eftir hjá félagi. Þetta er stór klúbbur. Ég er viss um að ég verði ánægður hérna," sagði Ibanez.


Athugasemdir
banner
banner