Viðar Örn Kjartansson, framherji Rostov, hefur gengið til liðs við tyrkneska félagið Yeni Malatyaspor á láni.
Lánssamningurinn gildir út tímabilið í Tyrklandi en Yeni Malatyaspor getur síðan keypt Viðar í sumar.
Félagaskiptin hafa legið í loftinu undanfarna daga en eftir langar og strangar viðræður í Istanbul var skrifað undir í dag.

Á síðasta ári fór Viðar til Rubin Kazan á láni en þeim lánssamningi var rift á dögunum.
Hinn 29 ára gamli Viðar er nú mættur til Tyrklands en hann hefur á ferli sínum einnig leikið í Noregi, Svíþjóð, Kína og Ísrael.
Yeni Malatyaspor siglir lygnan sjó í níunda sæti í tyrknesku deildinni en liðið er með 24 stig eftir 18 leiki.
✅ İzlandalı forvet Vidar Örn Kjartansson’u renklerimize bağladık.
— BtcTurk Yeni Malatyaspor (@YMSkulubu) January 27, 2020
FC Rostov takımından transfer ettiğimiz milli futbolcu Vidar Örn Kjartansson ile artı bir yıl opsiyonlu olmak üzere 6 aylık kiralık sözleşme imzaladık. pic.twitter.com/sxIrSWpizS
Hoşgeldin Viking @Vidarkjartans pic.twitter.com/tHkHWmLSIJ
— BtcTurk Yeni Malatyaspor (@YMSkulubu) January 27, 2020
Athugasemdir