Líklegt er að Jesse Lingard, leikmaður Manchester United, gangi í raðir West Ham á láni út tímabilið en The Athletic segir frá þessu í dag.
West Ham mun líklega greiða eina milljón punda fyrir lánssamninginn.
Hvert félag í ensku úrvalsdeildinni má vera með tvo leikmenn á láni úr ensku deildarkeppninni en West Ham er nú þegar með Craig Dawson og Said Benrahma á láni.
Líklegt er að Hamrarnir kaupi Benrahma frá Brentford og í kjölfarið verður hægt að ganga frá lánssamningi við Lingard.

Lingard hefur ekki verið ofarlega á blaði hjá Ole Gunnar Solskjær, stjóra Manchester United.
Athugasemdir