Fotbolti.net
27.01.21 - 23:37
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Pickford átti að gera mun betur - Dýrkeypt mistök

Pickford átti að gera mun betur - Dýrkeypt mistök
Canon

Mynd: Getty Images

Jordan Pickford, markvörður Everton, gerði sig sekan um slæm mistök þegar Everton gerði jafntefli við Leicester í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.
James Rodriguez kom Everton yfir með flottu marki í fyrri hálfleiknum en Leicester jafnaði í seinni hálfleiknum.

Það var Youri Tielemans sem skoraði markið með skoti fyrir utan teig. Pickford átti án nokkurs vafa að gera betur þar sem skotið var ekki langt frá honum.

Gylfi Þór Sigurðsson kom inn á sem varamaður á 85. mínútu hjá Everton.

Hér að neðan má sjá mörkin úr leiknum en þau birtust upprunalega á vef Morgunblaðsins.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.