Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 27. janúar 2021 11:00
Magnús Már Einarsson
Solskjær sér Diallo fyrir sér á hægri kantinum
Amad Diallo.
Amad Diallo.
Mynd: Getty Images
Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United, segist sjá Amad Diallo fyrir sér á hægri kantinum hjá liðinu.

Hinn 18 ára gamli Diallo kom til Manchester United frá Atalanta á 18,7 milljónir puda og Solskjær reiknar með að hann spili á hægri kanti þegar hann nær að brjóta sér leið inn í lið Manchester United.

„Það er uppáhaldsstaða hans. Hann er góður í að finna svæði. Hann getur farið innan á og utan á og hann mun fá tíma til að sanna að hann sé rétti maðurinn," sagði Solskjær.

„Við höfum verið að láta Mason [Greenwood], Marcus [Rashford], Daniel [James], Juan [Mata] og Paul [Pogba] spila þarna og við eigum möguleika en þegar þú horfir á hópinn og Amad þá hugsar þú með þér að þetta sé staðan sem hann mun passa í."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner