27.02.22 - 21:26
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ásgeir Galdur á leið til Kaupmannahafnar

Ásgeir Galdur í leik með Breiðabliki.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ásgeir Galdur í leik með Breiðabliki.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ásgeir Galdur Guðmundsson, ungur leikmaður Breiðabliks, er að ganga í raðir FC Kaupmannahafnar í Danmörku.
Frá þessu segir Arnar Laufdal - sem stýrir hlaðvarpsþættinum <i>Ungstirnin</I> hér á Fótbolta.net - á samfélagsmiðlinum <i>Twitter</I> í kvöld.
Frá þessu segir Arnar Laufdal - sem stýrir hlaðvarpsþættinum <i>Ungstirnin</I> hér á Fótbolta.net - á samfélagsmiðlinum <i>Twitter</I> í kvöld.
„Ásgeir 'Magic' Galdur til FC København (Staðfest). Búinn að skrifa undir samning. Enn einn Íslendingurinn að ganga í raðir FCK. Mest spennandi 2006 talent landsins. FCK að borga alvöru fjárhæðir fyrir Galdur," skrifar Arnar.
Ásgeir, sem verður 16 ára í apríl, hefur verið hluti af meistaraflokki Breiðabliks á þessu undirbúningstímabili.
FC Midtjylland hafði einnig áhuga á honum, en hann er að fara til FCK sem er stærsta félagið á Norðurlöndum.
FCK er mikið Íslendingafélag. Ásgeir Galdur verður fimmti Íslendingurinn hjá félaginu; hinir eru Andri Fannar Baldursson, Hákon Arnar Haraldsson, Ísak Bergmann Jóhannesson og Orri Steinn Óskarsson.

Ásgeir “Magic” Galdur til FC København (Staðfest). Búinn að skrifa undir samning. Enn einn Íslendingurinn að ganga í raðir FCK. Mest spennandi 2006 talent landsins. FCK að borga alvöru fjárhæðir fyrir Galdur. pic.twitter.com/fN8p2Dknim
— Arnar Laufdal (@AddiLauf) February 27, 2022