Fotbolti.net
27.02.24 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Emma Björt úr FH í Fram (Staðfest)

Emma Björt úr FH í Fram (Staðfest)
Canon

Mynd: Fram

Hertz
Emma Björt Arnarsdóttir er gengin til liðs við Fram á lánssamningi frá FH sem gildir út tímabilið.
Emma Björt er aðeins 17 ára gömul en hún er bráðefnilegur miðjumaður sem er uppalin hjá FH og á fimm leiki að baki fyrir yngri landslið Íslands.

Emma lék mikilvægt hlutverk með meistaraflokki ÍH í 2. deild kvenna í fyrra og mun reyna fyrir sér með Fram í Lengjudeildinni í sumar.

Hún hefur verið lykilleikmaður upp yngri flokka FH og er lýst sem leiknum og kraftmiklum leikmanni með góða sendingagetu.

„Við teljum Emmu styrkja hópinn okkar verulega og við hlökkum mikið til að sjá hana blómstra í dalnum í sumar,????????" segir meðal annars í tilkynningu frá Fram.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.