27.04.17 - 21:56
Þórir Karlsson
Katrín Ásbjörns: Auðvitað er Hörpu og Öddu saknað
Auglýsing

Katrín átti stórleik gegn nýliðum Hauka í kvöld

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Katrín Ásbjörnsdóttir var maður leiksins í 1-5 sigri á nýliðum Hauka í kvöld. Katrín skoraði tvö mörk og lagði upp tvö. En hver voru hennar fyrstu viðbrögð eftir leik?
Er hún var spurð hvort þessi frammistaða væri eitthvað sem við mættum búast við af henni sagði hún:
\"Já ég vona það, mér finnst ég vera í góðu formi og mér líður vel þannig að já vonandi verður sumarið svona.\"
Leikurinn í kvöld var fyrsti leikurinn sem Stjarnan spilar án bæði Hörpu Þorsteinsdóttur og Ásgerðar Stefáníu Baldursdóttur síðan 2003 og virtust Stjörnustúlkur alls ekki sakna þeirra, en Katrín hafði eftirfarandi að segja um það mál:
“Nei nei, ég meina við erum með helling af mannskap sem hefur komið í þeirra stöður og bara staðið sig mjög vel og ég meina auðvitað er þeirra saknað, en þær eru fyrir utan og öskra og láta í sér heyra þar.”
Viðtalið í heild sinni má sjá hér að ofan.