Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 27. apríl 2021 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Meistaradeildin í dag - Undanúrslitin hefjast í kvöld
Real Madrid fær Chelsea í heimsókn
Real Madrid fær Chelsea í heimsókn
Mynd: Getty Images
Real Madrid og Chelsea eigast við í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld en leikurinn fer fram á Alfredo Di Stefano-vellinum í Madríd.

Real Madrid vann Atalanta og Liverpool á leið sinni í undanúrslitin á meðan Chelsea hafði betur gegn Atlético Madríd og Porto.

Toni Kroos og Eden Hazard verða í hópnum hjá Chelsea á meðan Ferland Mendy er á meiðslalistanum.

Real Madrid vann Meistaradeildina síðast árið 2018 og hefur unnið hana þrettán sinnum á meðan Chelsea hefur aðeins unnið einu sinni en sá titill kom árið 2012.

Leikur dagsins:
19:00 Real Madrid - Chelsea
Athugasemdir
banner
banner
banner