Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   þri 27. apríl 2021 22:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sjáðu markið: Af hverju elti Nacho ekki Pulisic?
Mynd: EPA
„Þú Reynir settir strax spurningarmerki við varnarleikinn hjá Real í þessu marki," sagði Kjartan Atli Kjartansson, þáttarstjórnandi Meistaradeildarmarkanna á Stöð 2 Sport í kvöld.

Christian Pulisic kom Chelsea yfir á 14. mínútu og vakti varnarleikur tveggja varnarmanna Real athygli. Þeir bökkuðu niður á línu og þvinguðu Thibaut Courtois, markvörð liðsins, í að koma út á móti Pulisic.

„Algjörlega, pressan á Rudiger til að byrja með og svo ákveður Nacho að hætta við að elta og gefur í raun og veru Pulisic þetta góða færi. Það var margt að þarna en við tökum ekkert af Pulisic, hann gerir þetta vel."

„Nacho er á honum og er að gera allt rétt, af hverju eltir hann ekki Pulisic í stað þessa að hlaupa inn að markinu? Hann getur alltaf ýtt honum yfir á vinstri fótinn og einn besti markvörður heims myndi alltaf verja það skot,"
sagði Reynir Leósson, annar af sérfræðingum kvöldsins.

Raphael Varane ákvað einnig að bakka niður á línu.

Smelltu hér til að sjá mark Pulisic.
Athugasemdir
banner
banner
banner