fim 27.apr 2023 13:00 Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson |
|
Spá þjálfara í 2. deild: 11. sæti
Fótbolti.net kynnir liðin sem leika í 2. deild í sumar eitt af öðru eftir því hvar þeim er spáð. Við fengum alla þjálfara liðanna í deildinni til að spá fyrir sumarið og fengu liðin því stig frá 1-11 eftir því en ekki var hægt að spá fyrir sínu eigin liði. KF, Knattspyrnufélagi Fjallabyggðar, er spáð falli í sumar.
Spáin:
1.
2.
3.
4.
5.
6.
7.
8.
9.
10.
11. KF, 32 stig
12. KFG, 19 stig
Lokastaða í fyrra: KF hafnaði í áttunda sæti 2. deildar á síðustu leiktíð. Þeir unnu sex leiki af 22 og gerðu átta jafntefli, enduðu með 26 stig. Þeir soguðust einhvern veginn aldrei niður á fallsvæðið og þeim leið bara nokkuð þægilega. Það er spurning hvað gerist í sumar en þjálfarar liðanna búast við því að liðið verði í meiri fallbaráttu í sumar.
Þjálfarinn: Halldór Ingvar Guðmundsson var ráðinn þjálfari KF eftir síðustu leiktíð. Hann tók við liðinu af Slobodan Milisic sem stýrði liðinu í sjö ár. Halldór er á 31. aldursári en hann er uppalinn í KF. Hann lék síðast 16 leiki með liðinu sumarið 2021 í 2. deild en hann lék sem markvörður. Hann er leikjahæsti leikmaður KF frá upphafi en núna verður hann þjálfari liðsins.
Álit Ástríðunnar
Hlaðvarpsþátturinn Ástríðan er leiðandi í umfjöllun um 2. deild. Þáttarstjórnendur gefa sitt álit á liðunum fyrir mót.
Um KF segja þeir: KF er eitt af þeim liðum sem erfitt er að spá í fyrirfram. Þeir eru alla jafna frekar slakir á undirbúningstímabilinu og svo þegar mótið hefst þá er heimavöllurinn sterkur og gildin alltaf þau sömu. Þrjú ár í röð hefur fólk haft áhyggjur af þeim fyrir mót en þeir svo endað um miðja deild. Mögulega er árið í ár árið þar sem áhyggjurnar eru raunverulegar. Milo farinn og Halldór að stíga sín fyrstu skref. Getur allt gerst.
Styrkleikar: Einfalt svar, það sama og síðustu ár, heimavöllurinn. Það eru fáir vellir á landinu sem erfiðara er að heimsækja en Ólafsfjarðarvöllur. Sterkur kjarni af heimamönnum er sömuleiðis styrkleiki.
Veikleikar: Það er vont að segja það en reynsluleysi þjálfarans verður líklega veikleikinn. Miló er einn af þeim reynslumeiri í þessu og í staðinn kemur glænýr þjálfari. Hann þekkir dýnamíkina þó vel. KF hefur yfirleitt verið með 2-3 mjög öfluga erlenda leikmenn. Spurning hvort þeir verði nægilega mikil viðbót við liðið í ár.
Lykilmenn: Jordan Damachoua, Ljubomir Delic og Sævar Þór Fylkisson.
Gaman að fylgjast með: Dagbjartur Búi Davíðsson. Leikmaður fæddur 2006 og hefur leikið með Hömrunum. Uppalinn KA-strákur sem gæti fengið hlutverk framarlega á vellinum hjá KF. Getur skorað mörk.
Komnir
Adil Kouskous frá Bangladess
Akil Rondel Dexter De Freitas frá Reyni S.
Alex Máni Gærdbo Garðarsson frá Dalvík/Reyni
Breki Blöndal Egilsson frá Stjörnunni
Dagbjartur Búi Davíðsson frá KA (á láni)
Fransisco Eduardo Cruz Lemaur frá Spáni
Helgi Már Þorvaldsson frá KA
Rúnar Freyr Egilsson frá Þór
Vitor Vieira Thomas frá Víkingi Ó.
Farnir
Auðun Gauti Auðunsson í Hauka
Benjamin Omerovic til Svíþjóðar
Cameron Botes til Svíþjóðar
Hrannar Snær Magnússon í Selfoss
Julio Cesar Fernandes í Reyni S.
Sævar Gylfason í Hauka
Þorvaldur Daði Jónsson í KA
Þjálfarinn segir - Halldór Ingvar Guðmundsson
„Spáin kemur mér ekki mikið á óvart, það virðist oft vera venjan að spá okkur í kringum fallið undanfarin ár. Við höfum verið í meiðslavandræðum í vetur en allir verða 100% klárir þegar mótið hefst og teljum við okkur vera með hörkulið og fallbarátta er langt frá okkar markmiðum í sumar."
Fyrstu þrír leikir KF:
6. maí, KFA - KF (Fjarðabyggðarhöllin)
13. maí, KF - Sindri (Ólafsfjarðarvöllur)
20. maí, KF - ÍR (Ólafsfjarðarvöllur)