Fotbolti.net
27.05.13 - 19:27
Elvar Geir Magnússon
Ítalska deildin

Rafael Benítez orðinn stjóri Napoli (Staðfest)

Rafael Benítez orðinn stjóri Napoli (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Rafa Benítez er formlega orðinn þjálfari Napoli en þetta staðfesti félagið nú áðan. Hann tekur við starfinu af Walter Mazzarri sem tekinn er við Inter.
Það hefur legið í loftinu í nokkra daga að Benítez tæki við en ítalska félagið þurfti að bíða eftir að sá spænski væri endanlega laus allra mála hjá Chelsea.

Þrátt fyrir að stýra Chelsea í Meistaradeildina og vinna Evrópudeildina náði hann aldrei vinsældum meðal stuðningsmanna liðsins eftir að hafa tekið við stjórnartaumunum á Stamford Bridge 21. nóvember.

Napoli hafnaði í öðru sæti ítölsku deildarinnar og verður því með í Meistaradeildinni næsta vetur.

Áður hefur Benítez stýrt liði Inter á Ítalíu en náði ekki góðum árangri.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.