Justin Fashanu er eini breski atvinnumaðurinn í knattspyrnu sem hefur tilkynnt það opinberlega að hann sé samkynhneigður. Fashanu kom úr skápnum árið 1990 og framdi sjálfsmorð átta árum síðar, aðeins 37 ára gamall, eftir stanslaust áreiti frá enskum slúðurblöðum.
Amal Fashanu er frænka hans og heldur hún uppi tengslaneti fyrir atvinnumenn í knattspyrnu á Englandi sem eru í skápnum. Hún segir sjö leikmenn vera að íhuga að koma úr skápnum.
„Þetta er málefni sem hefur verið hundsað alltof lengi. Ensku leikmannasamtökin (PFA) settu sig loksins í samband við mig og buðu sinn stuðning. Þeir vilja ekki að leikmenn þjáist í hljóði, þeir vilja tryggja stuðning við leikmenn sem koma úr skápnum," sagði Amal.
„Það vill enginn vera fyrstur úr skápnum. Þessir menn þora ekki að koma út vegna mögulegra viðbragða fólks og sérstaklega áreiti slúðurmiðla. Þeir búast ekki við að samfélagið samþykki þá sem samkynhneigða og kjósa frekar að halda þessu leyndu.
„Þetta er mjög sorglegt ástand. Þeir fyrstu sem munu koma opinberlega úr skápnum verða brautryðjendur."
Athugasemdir