27.06.13 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Okazaki til Mainz (Staðfest)

Okazaki skoraði gegn Ítalíu í Álfukeppninni.

Mynd: Getty Images

Japanski sóknarmaðurinn Shinji Okazaki er búinn að skrifa undir þriggja ára samning við Mainz.
Okazaki kemur til félagsins frá Stuttgart en verðið hefur ekki verið gefið upp til fjölmiðla.

Okazaki, sem er 27 ára gamall, skoraði tvö mörk í þremur leikjum er Japan var slegið úr Álfukeppninni.
,,Við erum mjög ánægðir með að fá Shinji Okazaki til okkar,\" sagði Thomas Tuchel, þjálfari Mainz, við bundesliga.com.
,,Hann er leikmaður með hæfileika sem eru mjög mikilvægir fyrir okkur og henta spilastíl okkar vel.
,,Hann vinnur fyrir liðið og er mjög fjölbreytilegur í sókn og alltaf mjög hættulegur og kraftmikill fyrir framan markið.\"
Okazaki hefur skorað 10 mörk í 63 deildarleikjum fyrir Stuttgart eftir að hafa komið þangað í janúar 2011. Stuttgart vildi framlengja samning leikmannsins sem átti að renna út sumarið 2014, en Okazaki vildi leita á önnur mið.

Heimild: Sky Sports