Fotbolti.net
27.06.19 - 22:43
Magnús Þór Jónsson

Helgi Sig: Nóg af fréttum að vænta

Auglýsing
Helgi Sigurðsson.

Helgi Sigurðsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mjólkurbikarinn
„Þetta er stórt svekkelsi. Mér fannst við vera betri í 90 mínútur. Það var algjör óþarfi að setja þetta í framlengingu," sagði Helgi Sigurðsson, þjálfari Fylkis, eftir 4-2 tap gegn Breiðablik í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins í kvöld.
Blikar komust yfir í framlengingunni með kolólöglegu marki. Höskuldur Gunnlaugsson skoraði það, en hann var rangstæður en svo virtist hann líka brjóta á varnarmanni Fylkis.

„Ef svo er, þá er það hræðilegt. Maður verður að treysta þessum dómurum, en þeir verða þá líka að standa sína plikt. Kannski voru þeir orðnir uppgefnir eins og leikmenn. Ég hef engan grundvöll til að segja um hvort þetta var brot eða rangstaða."

„Ég legg það ekki í vana minn að væla yfir dómurum. Auðvitað er það fúlt, en við eigum að klára þennan leik á 90 mínútum. Það er eitthvað sem við getum unnið með."

„Þetta var frábær fótboltaleikur og við höfum verið að spila frábærlega undanfarið. Við leggjum ekki árar í bát."

Félagaskiptaglugginn opnar 1. júlí. Fylkir ætlar að styrkja sig.

„Það er alltaf nóg af fréttum í Árbænum. Hverjar þær verða, það verður að koma í ljós. Það er nóg af fréttum að vænta," sagði Helgi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.