Fotbolti.net
27.06.21 - 21:35
Matthías Freyr Matthíasson

Heimir Guðjóns: Þurfum að fara gera betur

Auglýsing
Heimir Guðjóns: Þurfum að fara gera betur
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Heimir Guðjónsson, þjálfari Vals, var svekktur eftir jafntefli gegn Fylki í kvöld.

„Það eru algjörlega vonbrigði að fá mark á sig á síðustu metrunum og líka að við áttum möguleika á að koma okkur í betri stöðu."
„Með að skora þetta annað mark að þá hefðum við endanlega klárað þetta en við gerðum það ekki og soldið vonbrigði síðustu fimmtán, tuttugu mínúturnar að við gátum ekki haldið boltanum betur innan liðsins.

„Mér finnst jafntefli ekki sanngjörn niðurstaða. Þeir áttu eitt færi í seinni hálfleik sem að þeir skoruðu úr og við áttum töluvert fleiri færi. Tek jákvætt úr þessum leik að við skoruðum úr föstu leikatriði."

„Vonbrigði að við höfum haft tvo möguleika á að slíta okkur frá toppnum en höfum nýtt hvorugan og það er eitthvað sem við verðum að hugsa um og fara gera betur."


Nánar er rætt við Heimi í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.