Fotbolti.net
27.06.26 - 10:57
Brynjar Ingi Erluson

Maður dagsins á HM - Þaggaði niður í gagnrýnisröddunum

Ousmane Dembele er maður dagsins á HM

Ousmane Dembele er maður dagsins á HM

Canon

Mynd: EPA

Leikmaður dagsins
Orkusalan og Fótbolti.net velja mann dagsins á HM á hverjum degi á meðan mótið er í gangi í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada.

Ballon d'Or-hafinn Ousmane Dembele hafði mikið að sanna á þessu heimsmeistaramóti eftir vonbrigðin á síðasta móti. Frakkar hafa lengi beðið eftir því að hann sýni sitt rétta andlit á stærsta sviðinu og nú virðist hann loksins vera mættur.
HM: Dembele fór hamförum gegn Norðmönnum - Senegal með stórsigur
TENGT EFNI

HM: Dembele fór hamförum gegn Norðmönnum - Senegal með stórsigur

Tekinn af velli fyrir hálfleik í úrslitaleiknum

Margir muna eftir úrslitaleiknum gegn Argentínu fyrir fjórum árum þar sem Dembele fékk á sig vítaspyrnu og var tekinn af velli undir lok fyrri hálfleiks.

Frakkinn átti hræðilegan leik og það kom fáum á óvart að Didier Deschamps skyldi kippa honum af velli. Á þeim tíma var Dembele enn óslípaður leikmaður en síðar tóku ferillinn og orðsporið miklum breytingum.

Hann gekk í raðir Paris Saint-Germain og hefur síðan verið einn besti leikmaður heims. Þar hefur hann unnið Meistaradeildina í tvígang og tekið leik sinn á allt annað plan.

Fyrir mótið voru mörg augu á Dembele. Spurningin var hvort hann gæti fylgt eftir frábærri félagsliðsframmistöðu á stærsta sviðinu með franska landsliðinu.

Hann komst ekki á blað í fyrsta leiknum gegn Senegal en skoraði síðan og lagði upp í 3-0 sigri Frakka á Írak.

Söguleg þrenna

Dembele reimaði svo á sig markaskóna í 4-1 sigri Frakka á Norðmönnum, sigri sem tryggði Frakklandi toppsæti riðilsins.

Hann gerði sér lítið fyrir og skoraði þrennu á 32 mínútum í fyrri hálfleik. Það var önnur fljótasta þrenna í sögu heimsmeistaramótsins.

Dembele var valinn maður leiksins en sagði sjálfur eftir leik að honum hefði fundist frammistaðan gegn Senegal og Írak betri. Ef það er rétt hjá honum verður forvitnilegt að sjá hvað hann býður upp á í útsláttarkeppninni.

Frakkar mæta Svíum í 32-liða úrslitum en leiðin fram undan verður allt annað en auðveld. Þjóðverjar eru líklegasti andstæðingurinn í 16-liða úrslitum, Holland eða Marokkó gætu beðið í 8-liða úrslitum og Evrópumeistarar Spánar eru líklegastir hinum megin í undanúrslitum.
Dembele og Mbappe fagna

Dembele og Mbappe fagna

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.