Bellingham um rifrildi sitt við Martínez: Hann er eins og ég

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Jude Bellingham, miðjumaður Real Madrid, og Lisandro Martínez, varnarmaður Manchester United, áttust við í æfingaleik liðanna í Bandaríkjunum síðastliðna nótt.
Martínez fór í tæklingu á Bellingham í leiknum en enski miðjumaðurinn var ekki sáttur við tæklinguna og ýtti við argentínska varnarmanninum.
Það myndaðist smá rifrildi þeirra á milli en Bellingham tjáði sig um Martínez eftir leikinn og sagði að það væri ekkert illt á milli þeirra.
„Hann kom eftir leikinn og óskaði mér alls hins besta. Ég virði það mjög mikið," sagði Bellingham.
„Ég skil að það sem gerist inn á vellinum sé eftir á vellinum. Ég virði það þegar tveir leikmenn eru að reyna að hjálpa liði sínu að vinna og sýni hvor öðrum virðingu eftir leikinn. Hann er frábær keppnismaður og frábær leikmaður. Hann er eins og ég, hann vill vinna."
„Stundum sýður upp úr en það er bara hluti af leiknum."
Real Madrid vann leikinn 2-0 en Bellingham, sem var keyptur til Real Madrid frá Borussia Dortmund, skoraði fyrra markið. Það var hans fyrsta mark fyrir spænska stórveldið.

Bellingham on Lisandro Martinez ?????
— UnitedReds (@UnitedRedscom) July 27, 2023
"He came over and said all the best, I really respect it. I understand what goes on the pitch stays on the pitch."pic.twitter.com/pGKKBFTCzx
Lisandro Martinez TALA a Bellingham.
— maxi (@maaxiroojas) July 27, 2023
A LOS INGLESES SE LOS FAJA ???????????? pic.twitter.com/PuEIEknMov