Fotbolti.net
27.07.23 - 21:37
Haraldur Örn Haraldsson

Haddi: 3-1 í hálfleik á okkar heimavelli í Úlfarsárdal

Auglýsing
Haddi: 3-1 í hálfleik á okkar heimavelli í Úlfarsárdal
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KA vann í kvöld Dundalk í undankeppni Sambandsdeildarinnar 3-1. Hallgrímur Jónasson þjálfari liðsins var mjög ánægður með úrslitin.

„Mér líður bara vel, gríðarlega ánægður með úrslitin. Ég er ánægður með hvað við vorum flottir þegar við komumst ofarlega á völlinn, við vorum mjög skilvirkir, skorum þrjú mörk og hefðum kannski getað skorað eitt þarna þegar Rodri setur hann í slánna. Þetta eru gríðarlega góð úrslit á móti mjög flottu atvinnumanna liði og þú veist, það er bara hálfleikur. Við ætlum okkur að fara til Írlands og við ætlum okkur að skora og fara áfram."

Það gekk á köflum erfiðlega fyrir KA að spila sig út úr pressunni og byggja upp spil, var það eitthvað áhyggjuefni?

„Við þurfum náttúrulega bara að vera betri að spila boltanum úr fyrstu pressu, við þurfum að þora meira. Ég skil það í lokin þegar það er komin smá þreyta í menn. En ég var að segja við strákana í hálfleik að við þurfum að spila okkur úr pressuni, við ætlum ekki að fara í leik sem er bara hlaup og fyrirgjafir og það var aðeins of mikið af því í fyrri hálfleik. Sem betur fer þá lifðum við af, menn lögðu sig allir fram, við sáum að við vorum þreyttir í lokin. Þannig að það verður verkefni áður en við förum út að við þurfum að leysa þetta betur, okkar leið til þess að fara áfram er að spila boltanum, spila fótbolta. Þú sást hvað við vorum flottir þegar við gerðum það í dag, við þurfum að spila meira fram á við og bara refsa þeim í Írlandi eins og við gerðum hérna."

Mörkin hjá KA komu almennt upp úr því þegar þeim tókst að leysa fyrstu pressuna, þannig það er ljóst að þegar KA tekst að leysa þessa pressu þá eiga þeir sénsa fram á við.

„Þeir fara með rosa aggressíva pressu og ef þú getur spilað í gegnum hana þá kemur pláss og við vissum það fyrir leikinn. Fyrstu 5 eru aggressívir í pressuni og hinir bíða svolítið til baka og þá þarftu að vera nógu góður til að spila í gegn, þú þarft að vera nógu klókur til að bjóða þig í réttum svæðum og þegar við gerðum það þá leit þetta rosalega vel út. Það er það sem við þurfum að gera ennþá meira í Írlandi."

KA fer í útileikinn með tveggja marka forystu sem Hadda þykir gríðarlega mikilvægt.

„Það er bara frábært, það er bara hálfleikur. Þetta er gríðarlega sterkt atvinnumannalið sem við mætum. Allt í einu tékkuðu þeir sig inn á sama hótel og við hérna í Reykjavík sem var stórfurðulegt og ég vona að ég lendi ekki í því aftur, en þetta er lið sem kemur með 50 manns með sér, leikmenn og teymi. Þetta er bara alvöru lið og þetta verður erfitt í Írlandi. En ef að við erum hreyfanlegir og þorum að spila boltanum og mætum með sjálfstraust eins og við erum með núna þá eigum við góðan möguleik að fara áfram. Við þurfum að skora og við þurfum að þora að spila."

Áhorfendatalan á Framvellinum var 915 sem var svipað og í fyrri heimaleiknum gegn Connah's Quay. KA menn héldu uppi góðri stemningu og Haddi segir það alveg ómetanlegt.

„Þetta er æðislegt, það er svo mikil orka sem þeir koma með og eins og ég hef talað um í viðtölum, fólk sem er að leggja mikið á sig fyrir KA, margir í sjálfboða vinnu, Framararnir koma frábærlega fram við okkur, tilbúnir að hjálpa okkur og gera allt fyrir okkur, við erum ótrúlega þakklátir. Eins og ég segi þetta er bara fín staða 3-1 í hálfleik á okkar heimavelli í Úlfarsárdal."

Jóan Símun Edmundsson er nýjasti leikmaður KA og hann kom inn á 80. mínútu. Hvernig líst Hadda á nýja manninn?

„Hann er bara góður leikmaður, hann þarf að komast rólega inn í þetta. Hann er ekki búinn að vera æfa með liði núna í mánuð, þannig við ætlum að koma honum rólega inn í þetta en bara gaman fyrir hann og áhorfendur að fá að sjá hann aðeins."

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.