Mbappe ætlar til Real Madrid og vill ekki ræða við Sádana

Mbappe með knöttinn.

Mynd: EPA

Rasmus Höjlund.

Mynd: EPA

Ward-Prowse til West Ham?

Mynd: Southampton

Mbappe með knöttinn.

Mynd: EPA

Mbappe, Höjlund, Lukaku, Dybala, Gallagher, Mbappe, Lavia, Fabinho, Sanches. Hér er slúðurpakkinn í boði Powerade.
Kylian Mbappe (24), framherji Frakklands og PSG, hefur ekki áhuga á að fara í viðræður við Al-Hilal. (Sky Sports)
Fullyrt er að Mbappe hafi gert samkomulag um að ganga í raðir Real Madrid á næsta ári. (Telegraph)
Manchester United hefur lagt fram munnlegt tilboð í danska sóknarmanninn Rasmus Höjlund (20) hjá Atalanta. Um er að ræða 42,8 milljóna punda tilboð auk 8,5 milljónir í árangurstengdar greiðslur. (Athletic)
Paris St-Germain hefur einnig áhuga á Höjlund og hefur boðið honum hærri laun. Forgangsatriði hans er þó að fara til Manchester United. (Gianluca di Marzio)
Cristiano Giuntoli íþróttastjóri Juventus er á leið til Englands til að reyna að ná samkomulagi við Chelsea um að fá belgíska sóknarmanninn Romelu Lukaku (30) lánaðan. (Calciomercato)
Lukaku varð eftir í London á meðan liðsfélagar hans héldu til Bandaríkjanna í æfingaferð. (Times)
Chelsea er að missa af möguleikanum á að fá argentínska framherjann Paulo Dybala (29) en hann er búinn að gera samkomulag um nýjan samning við Roma. (Tuttomercatoweb)
Enski miðjumaðurinn Conor Gallagher (23) vill vera áfram hjá Chelsea og berjast fyrir sæti sínu undir stjórn Mauricio Pochettino. West Ham er að reyna að fá hann en vonin virðist veik. (Mail)
West Ham heldur áfram í viðræðum við Southampton og enska miðjumanninn James Ward-Prowse (28). Viðræðurnar þokast í rétta átt og gætu skilað árangri. (Football Insider)
Al-Hilal færist nær í viðræðum um kaup á ítalska miðjumanninum Marco Verratti (30) frá Paris St-Germain. (Fabrizio Romano)
Liverpool ætlar að koma með endurbætt tilboð í belgíska miðjumanninn Romeo Lavia (19) hjá Southampton. (Athletic)
Um 15 milljónir punda skilja á milli í viðræðum Liverpool og Southampton um Lavia. (Telegraph)
Liverpool mun væntanlega samþykkja 40 milljóna punda tilboð frá Al-Ittihad í brasilíska miðjumanninn Fabinho (29) eftir að viðræður fóru aftur í gang. (Times)
Renato Sanches (25), miðjumaður PSG og portúgalska landsliðsins, er nálægt því að gera samkomulag við Roma um lán í eitt tímabil. (L'Equipe)
Vonir Aston Villa um að kaupa Giovani Lo Celso (27) frá Tottenham hafa aukist þar sem Napoli hefur enn ekki náð samkomulagi um argentínska miðjumanninn. (Birmingham Live)
Enski varnarmaðurinn Rico Lewis (18) hefur samþykkt fimm ára samning við Manchester City með möguleika á ári til viðbótar. Hollenski varnarmaðurinn Nathan Ake (28) mun einnig gera nýjan samning. (Mail)
Everton hefur ekki áhuga á að selja enska sóknarmanninn Dominic Calvert-Lewin (26) sem hefur verið orðaður við Roma. (Mail)