Fotbolti.net
27.07.26 - 18:24
Daníel Smári Magnússon

Byrjunarlið KA og Þórs: Victor Bertomeu byrjar

Byrjar inná í sínum fyrsta leik og hann er ekki af verri endanum.

Byrjar inná í sínum fyrsta leik og hann er ekki af verri endanum.

Canon

Mynd: Þór

Nágrannarnir KA og Þór eigast við í stórleik kvöldsins í Bestu-deild karla í kvöld. Leikurinn er sá fyrsti sem að KA spilar á nýjum heimavelli sínum, en framkvæmdir eru í fullum gangi á svæðinu og mikið hefur verið haft fyrir því að gera fólki kleift að upplifa grannaslaginn á nýja vellinum.

Lestu um leikinn: KA 0 - 0 Þór
KA mennirnir Birgir Baldvinsson og Jeppe Pedersen taka út leikbann, en það gera Þórsararnir Ágúst Elí Hlynsson og Bjarni Guðjón Brynjólfsson einnig. Inn í lið Þórs koma þeir Birgir Ómar Hlynsson, Sigfús Fannar Gunnarsson og nýliðinn Victor Bertomeu. Hjá KA koma Jakob Héðinn Róbertsson og Kári Gautason inn.

Byrjunarlið KA

Ívar Arnbro Þórhallsson, Kári Gautason, André Rømer, Adam Ægir Pálsson, Hallgrímur Mar Steingrímsson, Danijel Dejan Djuric, Jakob Héðinn Róbertsson, Markús Máni Pétursson, Hans Viktor Guðmundsson (fyrirliði), Jakob Snær Árnason, Guðjón Ernir Hrafnkelsson

Byrjunarlið Þór

Aron Birkir Stefánsson (fyrirliði), Birgir Ómar Hlynsson, Yann Emmanuel Affi, Gyrðir Hrafn Guðbrandsson, Einar Freyr Halldórsson, Victor Bertomeu, Kristófer Kristjánsson, Fannar Daði Malmquist Gíslason, Ragnar Óli Ragnarsson, Christian Jakobsen, Sigfús Fannar Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.