Fotbolti.net
27.07.26 - 18:23
Brynjar Ingi Erluson

Hrannar Bogi í þjálfarateymi KR

Hrannar Bogi hefur verið ráðinn til KR

Hrannar Bogi hefur verið ráðinn til KR

Canon

Mynd: KR

Hrannar Bogi Jónsson hefur verið ráðinn inn í þjálfarateymi meistaraflokks KR en þetta kemur fram í tilkynningu félagsins á Instagram í dag.
Hrannar Bogi hættur hjá Stjörnunni (Staðfest)
TENGT EFNI

Hrannar Bogi hættur hjá Stjörnunni (Staðfest)

Hrannar er 32 ára gamall og starfaði síðast sem aðstoðarþjálfari Stjörnunnar. Þar áður þjálfaði hann Augnablik.

Hann var aðstoðarmaður Jökuls Elísabetarsonar hjá Stjörnunni en lét af störfum eftir að Jökull var rekinn. Þeir höfðu áður unnið saman hjá Augnabliki þar sem Hrannar lék undir stjórn Jökuls og bar fyrirliðabandið.

Hrannar er nú mættur í Vesturbæinn og kemur inn í þjálfarateymi meistaraflokks karla hjá KR. Hann tekur jafnframt við þjálfun 2. flokks karla út tímabilið og hefur störf 1. ágúst.

Öflug viðbót við þjálfarateymið hjá KR-ingum sem eru í 2. sæti Bestu deildarinnar með 35 stig.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.