„Tilfinningin er hrikalega góð. Það er stórkostlegt að vera kominn upp með Fylki aftur," sagði Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Fylkis, eftir 5-1 sigur gegn Gróttu í dag. Fylkismenn tryggðu sér sæti í deild þeirra bestu að nýju og það með stæl.
Lestu um leikinn: Fylkir 5 - 1 Grótta
„Þá er einu markmiði náð, næsta markmið er að verða meistari í þessari deild. Við ætlum að klára sumarið með reisn. Við höfum spilað feikilega vel á tímabilinu."
„Við erum sennilega yngsta liðið í Lengjudeildinni. Ég er rosalega ánægður með þessa stráka og er stoltur af þeim. Við erum komnir upp og nú förum við í þá vinnu að skoða hvar þarf að styrkja liðið. Það verður ekkert svakalega mikið held ég."
Rúnar segist ætla að finan réttu karakterana fyrir baráttuna í Bestu deildinni á næsta ári en viðtalið sem Arnar Daði Arnarsson tók við Rúnar má sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir