Fotbolti.net
27.10.23 - 21:57
Stefán Marteinn Ólafsson

Telma: Fannst þær ekkert sérlega eiga þetta skilið

Auglýsing
Telma Ívarsdóttir

Telma Ívarsdóttir

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Netgíró

Ísland tók á móti Danmörku í þriðju umferð í Þjóðadeild kvenna. Íslenska liðið sýndi flotta frammistöðu í leiknum en urðu þó að sætta sig við svekkjandi tap fyrir Dönum. 

Ísland er með þrjú stig eftir þrjár fyrstu umferðir Þjóðadeildarinnar, á meðan Danmörk trónir á toppi riðilsins með fullt hús stiga - eða níu stig.

„Þetta var mjög svekkjandi. Sérstaklega bara miðað við frammistöðuna okkar í dag. Við gáfum allt í þetta en það skilaði sér ekki í dag." Sagði Telma Ívarsdóttir markvörður Íslenska liðsins eftir leikinn í kvöld.

„Mér fannst við allar tilbúnar í þennan leik og við gáfum allt í þetta en það gekk bara því miður ekki upp í dag." 

Íslenska liðið hefur fengið gangrýni í síðustu verkefnum fyrir spilamennsku sína en Telma vildi ekki meina að þessi umræði næði til hópsins.

„Ég held að flestar okkar lesi ekkert það sem er verið að segja um okkur á netinu og við höfum ekkert gott af því heldur að vera lesa eitthvað á netinu sem kemur okkur eiginlega ekkert við. Það er fullt af umræðu í gangi en við erum bara fókuseraðar á okkur og okkar leik. Við reynum alltaf að gera okkar besta en það virkar ekki alltaf og við fáum ekki alltaf stig út úr því en ég er bara sátt með okkur í dag þótt við höfum tapað þessum leik. Við sýndum alveg að við vildum þetta en það bara gekk ekki upp." 

Íslenska liðið spilaði flottan leik í kvöld og voru óheppnar að fá ekkert út úr þessum leik.

„Það var mjög svekkjandi afþví mér fannst við eiga alveg góða sénsa. Við vorum að spila á milli lína og halda vel í boltann, sérstaklega í fyrri hálfleik og þær áttu ekki mörg dauðafæri þannig mér fannst þær ekkert sérlega eiga þetta eitthvað skilið en svona er þetta." 

Nánar er rætt við Telmu Ívarsdóttur í spilaranum hér fyrir ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.