Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 27. desember 2019 17:30
Magnús Már Einarsson
Pawel Grudzinski í Víði Garði (Staðfest)
Pawel í leik með Víði árið 2017.  Hann er nú mættur aftur til Víðis.
Pawel í leik með Víði árið 2017. Hann er nú mættur aftur til Víðis.
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Víðir Garði hefur fengið bakvörðinn Pawel Grudzinski til liðs við sig frá Njarðvík.

Hinn 27 ára gamli Pawel hefur leikið á Íslandi frá því árið 2013 en hann spilaði nítján leiki með Njarðvík í Inkasso-deildinni síðastliðið sumar.

Pawel þekkir til hjá Víði því hann skoraði ellefu mörk í 55 leikjum með liðinu á árunum 2016 til 2018.

„Pawel er bakvörður sem einnig getir leyst ýmsar aðrar stöður á vellinum. Reynslumikill leikmaður með vel yfir hundrað mótsleiki í deild og bikar. Bjóðum Pawel hjartanlega velkomin aftur í Víðisfjölskylduna," segir á Facebook síðu Víðis.

Víðir Garði endaði í 4. sæti í 2. deildinni á síðasta tímabili.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner