Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 27. desember 2019 18:26
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Zlatan til AC Milan (Staðfest)
Zlatan er mættur aftur til AC Milan.
Zlatan er mættur aftur til AC Milan.
Mynd: Getty Images
AC Milan staðfesti það nú rétt í þessu að sænski framherjinn Zlatan Ibrahimovic sé kominn aftur til félagsins.

Zlatan lék með AC Milan á árunum 2010-2012, hann varð Ítalíumeistari með félaginu.

Hann skrifar undir samning sem gildir til sex mánaða með möguleika á eins árs framlengingu.

Zlatan fór frá AC Milan til PSG í Frakklandi, næsti viðkomustaður hans var Manchester United og nú síðast lék hann í Bandaríkjunum hjá LA Galaxy.

AC Milan menn vonast væntanlega til þess að Zlatan geti séð til þess að þeir blandi sér í baráttu um Evrópusæti en gengi liðsins hefur verið slakt það sem af er tímabili. Þeir eru 14 stigum frá Meistaradeildarsæti, í 11. sæti deildarinnar.


Athugasemdir
banner
banner
banner