PSV Eindhoven hefur gert tilboð í Patrick van Aanholt, bakvörð Crystal Palace. Kaupverðið gæti farið upp í 7,6 milljónir punda.
Hollenski landsliðsmaðurinn á átján mánuði eftir af samningi sínum.
PSV vill ganga frá kaupunum áður en glugganum verður lokað á föstudaginn.
Hollenski landsliðsmaðurinn á átján mánuði eftir af samningi sínum.
PSV vill ganga frá kaupunum áður en glugganum verður lokað á föstudaginn.
Van Aanholt var hjá PSV hluta af yngri flokka árum sínum en Chelsea fékk hann til Englands 2007.
Palace er í ellefta sæti ensku úrvalsdeildarinnar en PSV er í fimmta sæti hollensku úrvalsdeildarinnar.
Athugasemdir