Hatem Ben Arfa, fyrrum vængmaður Newcastle United, hefur gengið í raðir Real Valladolid í La Liga.
Ben Arfa hefur verið án félags síðan hann yfirgaf franska félagið Rennes í sumar.
Hann hefur gert sex mánaða samning við Valladolid en félagið er í eigu brasilísku goðsagnarinnar Ronaldo, eins besta sóknarmanns sögunnar.

Ben Arfa er 32 ára og á fimmtán landsleiki fyrir Frakkland. Hann hóf feril sinn hjá Lyon en hefur einnig spilað fyrir Marseille, Hull City, Nice og Paris St-Germain.
Valladolid er í 16. sæti í La Liga en liðið heimsækir Mallorca á laugardag.
😱💜 Ben Arfa!
— Real Valladolid CF EN (@realvalladolidE) January 28, 2020
He joins Real Valladolid for the rest of the season
Welcome!#pucela #RealValladolid pic.twitter.com/Cm9DqKMSZN
Athugasemdir