Aron Bjarnason, leikmaður IK Sirius í Svíþjóð, gekkst undir aðgerð og verður frá næstu fimm til sex vikurnar.
Þessu greinir félagið frá á Twitter en Aron fór í aðgerð á fæti og mun því missa af hluta undirbúningstímabilsins.
Talið er að Aron nái fullum bata áður en Allsvenskan deildin hefst og ætti hann því að vera klár í slaginn þann 2. apríl þegar Sirius heimsækir Norrköping.
Aron gekk í raðir Sirius í febrúar mánuði árið 2021 en hann kom frá Ujpest í Ungverjalandi.
Hann lék sinn fyrsta landsleik fyrr í mánuðinum.
?? Aron Bjarnason har genomgått ett mindre ingrepp i en fot och kommer därför att missa fem till sex veckor av försäsongen.
— IK Sirius Fotboll (@siriusfotboll) January 27, 2023
Prognosen just nu är att Aron fokuserar på rehabilitering och tar sikte på att vara fullt återställd till den allsvenska starten. pic.twitter.com/J57qX7M54T