Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   lau 28. janúar 2023 09:50
Ívan Guðjón Baldursson
Leeds missir af Ounahi - Fer til Marseille
Mynd: Getty Images

Framtíð marokkóska miðjumannsins Azzedine Ounahi hefur verið í mikilli óvissu eftir frábæra frammistöðu hans á HM í Katar.


22 ára Ounahi er mikilvægur hlekkur í liði Angers og var útlit fyrir að hann væri á leið til Leeds í ensku úrvalsdeildinni en svo er ekki.

Napoli og Aston Villa eru meðal félaga sem vildu krækja í Ounahi en hann er á leið til Marseille samkvæmt heimildum Sky Sports.

Marseille mun borga um 20 milljónir punda fyrir Ounahi sem gerir samning til 2027. 

Fabrizio Romano greinir einnig frá þessum fregnum en hann segir kaupverðið aðeins nema 10 milljónum evra, eða tæplega helmingi minna heldur en Sky heldur fram.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner