Fotbolti.net
28.01.23 - 17:21
Ívan Guðjón Baldursson

Reykjavíkurmótið: Víkingur fer í úrslitaleikinn

Reykjavíkurmótið: Víkingur fer í úrslitaleikinn
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það fóru tveir leikir fram í A-riðli Reykjavíkurmóts karla í dag þar sem Víkingur R. lagði Fylki á útivelli þökk sé tvennu frá Danijel Dejan Djuric.

Danijel skoraði mark sitthvoru megin við hálfleikinn og minnkaði Óskar Borgþórsson muninn fyrir heimamenn á 79. mínútu.

Nær komst Fylkir ekki og endar Víkingur því á toppi riðilsins með 6 stig og Fylkir á botninum með þrjú. Víkingur mætir því Fram í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins 2023.

Fylkir 1 - 2 Víkingur R.
0-1 Danijel Dejan Djuric ('35)
0-2 Danijel Dejan Djuric ('47)
1-2 Óskar Borgþórsson ('79)

KR og ÍR deila öðru og þriðja sæti riðilsins eftir 1-1 jafntefli í innbyrðisviðureigninni í dag.

Jordian G. S. Farahani tók forystuna fyrir ÍR í upphafi síðari hálfleiks en Luke Rae jafnaði fyrir KR tólf mínútum síðar.

Meira var ekki skorað og ljúka bæði lið keppni með fjögur stig eftir þrjár umferðir.

Öll lið riðilsins voru jöfn með þrjú stig fyrir lokaumferðina.

KR 1 - 1 ÍR
0-1 Jordian G S Farahani ('53 )
1-1 Luke Morgan Conrad Rae ('65 )

Reykjavíkurmótið: Víkingur fer í úrslitaleikinn
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.