Roma vill Casemiro - Napoli og Juventus fylgjast með Höjlund - Úlfarnir búast við tilboðum í Cunha
   þri 28. janúar 2025 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Almirón að snúa aftur til Atlanta
Almirón skoraði 30 mörk í 223 leikjum hjá Newcastle, eftir að hafa gert 22 mörk í 70 leikjum með Atlanta.
Almirón skoraði 30 mörk í 223 leikjum hjá Newcastle, eftir að hafa gert 22 mörk í 70 leikjum með Atlanta.
Mynd: EPA
Atlanta United er að ganga frá kaupum á paragvæska sóknartengiliðnum Miguel Almirón sem hefur verið hjá Newcastle United síðustu sex ár.

Newcastle borgaði metfé til að kaupa Almirón frá Atlanta á sínum tíma en leikmaðurinn er orðinn 30 ára gamall og búinn að missa sæti sitt í byrjunarliðinu.

Almirón hefur aðeins komið við sögu í 9 úrvalsdeildarleikjum á tímabilinu, alltaf sem varamaður nema einu sinni, en hann á eitt og hálft ár eftir af samningi við Newcastle.

Atlanta mun greiða um 10 milljónir punda til að kaupa Almirón, sem kostaði Newcastle 21 milljón á sínum tíma.

Samningsviðræður Almirón við Atlanta eru komnar langt á veg en félagið er í mikilli sókn og er einnig að krækja í hinn eftirsótta Emmanuel Latte Lath frá Middlesbrough, sem kostar 18 milljónir punda.

Fabrizio Romano hefur sett „here we go!" stimpilinn sinn á félagaskiptin.
Athugasemdir
banner
banner
banner