Fotbolti.net
28.01.25 - 21:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Man Utd og Lecce komast að samkomulagi

Man Utd og Lecce komast að samkomulagi
Canon

Mynd: EPA

Patrick Dorgu vinstri bakvörður Lecce er við það að ganga til liðs við Man Utd.
Þessi tvítugi landsliðsmaður Danmerkur hefur þegar samþykkt samningstilboð frá enska félaginu en erlendir fjölmiðlar greindu frá því í kvöld að félögin hafi náð samkomulagi um kaupverð.

Man Utd mun borga um 35 milljónir evra fyrir hann.

Enska félagið hefur þurft á vinstri bakverði að halda þar sem Luke Shaw er meiddur og Tyrell Malacia hefur ekki fundið sig. Sky Sports greindi frá því að Man Utd væri tilbúið að lána Malacia þegar Dorgu kemur.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.