Úrslitaleikur Reykjavíkurmóts karla fer fram á fimmtudagskvöld og keppt verður til úrslita í kvennaflokki á sunnudag.
Valur og KR mætast í úrslitaleiknum í karlaflokki á fimmtudaginn klukkan 20 í Egilshöll.
Valur vann alla sína leiki í riðlakeppninni en þar mætti liðið Þrótti, Fram og Fylki. KR hafði betur gegn Fjölni, Víkingi og Leikni en tapaði gegn ÍR í sínum riðli.

Víkingur og Stjarnan/Álftanes mætast í úrslitaleik kvenna. Leikurinn fer fram sunnudaginn 2. febrúar klukkan 18:00 í Egilshöll.
Stjarnan/Álftanes vann alla sína leiki í riðlakeppninni en þar mætti liðið Fylki, KR og Val. Víkingur vann einnig alla sína leiki í riðlakeppni en ásamt Víkingi í riðli voru Fjölnir, Þróttur og Fram.
Athygli er vakin á því að ef jafnt verður eftir venjulegan leiktíma í leikjunum þá verður strax gripið til vítaspyrnukeppni til að knýja fram úrslit.
fimmtudagur 30. janúar
Reykjavíkurmót karla - Úrslit
20:00 Valur-KR (Egilshöll)
sunnudagur 2. febrúar
Reykjavíkurmót kvenna - Úrslit
18:00 Víkingur R.-Stjarnan/Álftanes (Egilshöll)
Athugasemdir