Fotbolti.net
28.03.17 - 22:01
Hafliði Breiðfjörð

Jón Daði: Þetta er furðulegt

Auglýsing
Jón Daði fær sér vatnssopa í leiknum í kvöld.

Jón Daði fær sér vatnssopa í leiknum í kvöld.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
„Þetta var solid 1-0 sigur,\" sagði Jón Daði Böðvarsson eftir 1-0 sigur á Írum í kvöld.

Hörður Björgvin Magnússon skoraði eina markið með frábæru skoti beint úr aukaspyrnu.
„Hann er með frábæran vinstri fót og hefur þetta í sér. Maður hefur séð hann gera þetta á æfingum. Ég óska honum til hamingju með fyrsta landsliðsmarkið.\"

Enska Championship deildin klárast í byrjun maí en Jón Daði er í eldlínunni þar með Wolves. Hann fær frí i einhvern tíma áður en kemur að stórleiknum gegn Króatíu þann 11. júní.

„Þetta er furðulegt einhvernegin. Maður klárar deildina og síðan fær maður smá frí. Það er mikilvægt að hvíla sig. Við í Championship höfum í raun ekki fengið nægilega mikið frí eftir EM. Það verður mikilvægt að kúpla sig aðeins frá þessu þegar líður að því,\" sagði Jón Daði.

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.