Ísland er tveimur mörkum undir gegn Dönum er liðin takast á í lokakeppni EM U21 árs landsliða.
Danir komust yfir snemma leiks en markið hefði líklegast ekki átt að standa vegna afar naumrar rangstöðu í aðdragandanum. Þeir tvöfölduðu svo forystuna í kjölfarið af hornspyrnu og gat Sveinn Aron Guðjohnsen svo minnkað muninn fyrir Ísland þegar hann steig á vítapunktinn.
Spyrna Sveins Arons var þó ekki nógu góð og varði markvörður Dana. Honum tókst þannig að halda mikilvægri tveggja marka forystu.
Sjáðu fyrsta mark Dana
Sjáðu annað mark Dana
Sjáðu vítaspyrnu Sveins Arons
Dauðafæri hjá íslenska liðinu - það liggur mark í loftinu! pic.twitter.com/FpImDhwTqF
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) March 28, 2021
Danir eru komnir í 2-0 eftir 18 mínútur. Misskilningur í íslensku vörninni og Mads Bech kemst einn í gegn. pic.twitter.com/eZw9jOdTsn
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) March 28, 2021
Athugasemdir