Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 28. mars 2023 23:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Antonio segir að Man Utd og Liverpool geti bara náð í Kane
Mynd: EPA

Harry Kane er sagður vera á förum frá Tottenham í sumar en samningur hans við félagið rennur út sumarið 2024.

Darren Lewis hjá Mirror segir að Kane muni krefjast þess að vera seldur í sumar.


Michail Antonio framherji West Ham sagði í podcastinu sínu, Footballers Football Podcast, sem hann heldur úti ásamt Callum Wilson framherja Newcastle að Kane muni aðeins geta valið á milli tveggja félaga í sumar.

„Eina liðið sem hann getur farið til er United. Nei annars, það eru tvö, United og Liverpool, Liverpool þarf níu. Hann mun kosta að minnsta kosti 100 milljónir punda," sagði Antonio.


Athugasemdir
banner
banner
banner