Arna Sif Ásgímsdóttir hefur leikið vel frá því skoska kvennadeildin fór af stað. Langt hlé var á deildinni vegna covid en eftir hlé hefur Glasgow City unnið fimm leiki í þessum mánuði og er á toppi deildarinnar.
Liðið vann þrjá leiki í síðustu viku. Arna Sif hefur leikið í fjórum leikjanna og verið fyrirliði liðsins.
Liðið vann þrjá leiki í síðustu viku. Arna Sif hefur leikið í fjórum leikjanna og verið fyrirliði liðsins.
Hún er á láni hjá skoska félaginu frá Þór/KA og heldur heim til Íslands í maí.
Liðið hefur aðeins fengið á sig eitt mark og Arna skoraði í fyrsta leiknum í mánuðinum. Hún hefur verið tilnefnd sem besti leikmaður liðsins í apríl.
Hér að neðan má kjósa Örnu sem leikmann mánaðarins. Einnig er hægt að hlusta á nýjasta þátt Heimavallarins þar sem Arna Sif var til viðtals.
Athugasemdir