Kompany vill taka við Bayern - Isak og Brobbey efstir á blaði Arsenal - McKenna orðaður við Chelsea og Man Utd
   fim 28. apríl 2022 12:53
Hafliði Breiðfjörð
Raiola ekki látinn - „Í annað sinn sem þeir drepa mig!"
Sögur af andláti Mino Raiola eru stórlega ýktar!
Sögur af andláti Mino Raiola eru stórlega ýktar!
Mynd: Getty Images

Umboðsmaðurinn Mino Raiola er allt annað en sáttur við fréttir sem hafa borist í morgun þess efnis að hann sé látinn.


Fjöldi ítalskra fjölmiðla greindi frá andláti hans í morgun en umboðsmaðurinn kom á Twitter rétt í þessu og leiðrétti það.

„Núverandi staða heilsu minnar fyrir þau sem eru að velta því fyrir sér: brjálaður í skapinu, þetta er í annað sinn á 4 mánuðum sem þeir drepa mig. Virðist líka geta endurlífgast," skrifaði hann á Twitter.

Raiola hefur verið að glíma við veikindi og dvalið  á sjúkrahúsi að undanförnu og staðan hefur verið slæm. Hann er sagður berjast fyrir lífi sínu en er þó ekki látinn eins og ítalskir fjölmiðlar fullyrtu í morgun.



Athugasemdir
banner
banner