Atlético Madríd hefur endurvakið áhuga sinn á miðjumanninum Marc Casado, sem er á mála hjá Spánarmeisturum Barcelona.
Diego Simeone hefur lengi haft auga á Casado sem hefur átt erfitt með að festa sæti sitt í byrjunarliði Börsunga.
Casado er 22 ára gamall leikmaður sem skaust fram á sjónarsviðið á síðustu leiktíð undir Hansi Flick.
Frammistaða hans kom honum í spænska landsliðið, en hann fékk ekki stórt hlutverk á liðnu tímabili og vill komast frá Barcelona.
Sport segir að Atlético hafi verið að skoða að fá hann í janúar og nú endurvakið áhuga sinn fyrir sumargluggann.
Simeone sér Casado fyrir sér sem lykilmann á miðsvæði Atlético á næstu leiktíð, en hvort Barcelona sé reiðubúið að leyfa honum að fara verður að skýrast betur á næstu vikum.


