Arsenal með 20 milljóna punda verðmiða á Jesus - Man City með í forgangi að fá Anderson - City hefur ekki áhuga á Enzo
   fim 28. maí 2026 16:45
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Davíð Smári: Það er þar sem ég hef byrjað með mín lið
Lengjudeildin
Davíð Smári.
Davíð Smári.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Davíð og Donni.
Davíð og Donni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Njarðvík hefur hikstað í byrjun Lengjudeildarinnar eftir að hafa verið spáð velgengni fyrir mót. Liðið vann öruggan 0-3 útisigur á Vestra í gær og er nú með átta stig eftir sex umferðir.

Davíð Smári Lamude, þjálfari liðsins, ræddi við Fótbolta.net eftir leikinn í gær. Hann var spurður út í stigasöfnunna og hvernig hann ætlaði að fá sína menn til að smella saman og tengja saman sigurleiki.

Lestu um leikinn: Vestri 0 -  3 Njarðvík

„Við erum að einhverju leyti að smíða nýtt lið og ég er nýr hjá félaginu, mér finnst strúktúrinn á liðinu mjög góður - auðvelt fyrir mig sem þjálfara liðsins að segja það. Ég held að þeir sem horfi á liðið viti að það sé góður strúktúr, við erum búnir að halda hreinu í fjórum leikjum á tímabilinu. Það þarf að vera íagi þegar þú byggir upp sterkt lið og það er þar sem ég hef byrjað með mín lið, hvort sem það hefur verið hjá Kórdrengjum, Vestra eða Njarðvík. Mér finnst sá stimpill vera kominn á þetta lið, það eru engir einstaklingar í liðinu og enginn stærri en liðið. Mér fannst við sína það líka með því að fagna þessum litlu sigrum (inni í leiknum), það er það sem ég vil að liðið mitt standi fyrir."

„Njarðvíkurliðið er stútfúllt af gæðum og hæfileikum, við höldum vel í boltann þegar þess þarf og við tikkum mikið af sendingum. Það er allt til staðar til þess að liðið geti verið gott. Á meðan strúktúrinn á liðinu verður batnandi og við leið í rétta átt þá er ég mjög ánægður. Ég er líka með frábært teymi í kringum mig í Donna Geir, Heskey og Bjarti styrktarþjálfara. Við erum allir saman í þessu að reyna ná því mesta út úr þessu liði. Ég hef ekki haft neinar áhyggjur af þessu frá bryjun."

„Við horfum á einn leik í einu og ég held að einhverju leyti hafi margir farið fram úr sér í plönum, en staðreyndin er sú að við ætlum að keppast um að vera með í þessu,"
sagði Davíð eftir leikinn í gær. Viðtalið má nálgast hér að neðan.

Njarðvík mætir næst Gróttu á sunnudagskvöld. Sá leikur verður spilaður á JBÓ vellinum í Njarðvík.
Davíð Smári: Miklar tilfinningar að keyra inn í bæinn
Lengjudeild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Fylkir 6 5 0 1 11 - 3 +8 15
2.    Afturelding 6 4 1 1 17 - 12 +5 13
3.    HK 6 4 0 2 13 - 9 +4 12
4.    Þróttur R. 6 3 1 2 14 - 9 +5 10
5.    Grótta 6 3 0 3 12 - 14 -2 9
6.    Njarðvík 6 2 2 2 5 - 4 +1 8
7.    Grindavík 6 1 4 1 7 - 7 0 7
8.    ÍR 6 2 1 3 15 - 16 -1 7
9.    Vestri 6 2 1 3 10 - 15 -5 7
10.    Leiknir R. 6 1 3 2 4 - 9 -5 6
11.    Ægir 6 1 1 4 6 - 9 -3 4
12.    Völsungur 6 0 2 4 2 - 9 -7 2
Slapp
banner
banner
banner