Við gleðjumst yfir því að síðan sé komin aftur í loftið eftir að hafa legið niðri í einn og hálfan sólarhring vegna tæknilegra vandamála. Gott og gaman að vera með ykkur aftur! Hér er slúðurpakki dagsins.
Arsenal er með 20 milljóna punda verðmiða á brasilíska framherjanum Gabriel Jesus (29) fyrir sumarið. (Athletic)
Manchester City setur í forgang að fá enska miðjumanninn Elliot Anderson (23) frá Nottingham Forest en félagið býr sig undir nýja tíma án Pep Guardiola. (Mail)
City hefur ekki áhuga á Enzo Fernandez (25) sem vill kveðja Chelsea. (Sky Sports)
RB Leipzig er ákveðið í að halda Yan Diomande (19) eftir að hafa tryggt sér Meistaradeildarsæti. Liverpool hefur áhuga á honum. (Mirror)
Þýska félagið Bayer Leverkusen vonast til að sannfæra Andoni Iraola, sem er að hætta hjá Bournemouth, um að taka við sem nýr stjóri. (Kicker)
Arsenal hefur unnið að undirbúningi til að kaupa Morgan Rogers (23) frá Aston Villa. (Football Transfers)
Liverpool vill halda brasilíska markverðinum Alisson Becker (33) í annað tímabil en Juventus vonast til að fá hann í sumar. (Gianluca Di Marzio)
Fulltrúar Liverpool og Inter hafa fundað vegna mögulegra kaupa ítalska félagsins á enska miðjumanninum Curtis Jones (25). (Gianluca Di Marzio)
Brasilíski kantmaðurinn Savinho (22) er opinn fyrir því að yfirgefa Manchester City en Tottenham hefur áhuga á honum. (Football Insider)
Spænski varnarmaðurinn Oscar Mingueza (27) vill fara í ensku úrvalsdeildina í sumar. Aston Villa og Newcastle eru meðal félaga sem fylgjast með þessum leikmanni Celta Vigo. (Sky Sports)
