Bart Kooistra (2001), sóknarmaður Aftureldingar, hefur spilað mjög vel í undanförnum leikjum.
Fyrir leikinn gegn Grindavík í gær hafði hann skorað fjögur mörk og lagt upp þrjú í fjórum síðustu leikjum. Hann var svo valinn maður leiksins í gær, í þriðja sinn í sumar.
Fyrir leikinn gegn Grindavík í gær hafði hann skorað fjögur mörk og lagt upp þrjú í fjórum síðustu leikjum. Hann var svo valinn maður leiksins í gær, í þriðja sinn í sumar.
Lestu um leikinn: HK 1 - 0 Völsungur
„Frábær frammistaða hjá Hollendingnum sem var mikið í boltanum. Átti margar frábærar sendingar inn fyrir vörn heimamanna og skapaði mörg góð færi fyrir liðsfélaga sína. Grindvíkingar réðu ekkert við hann og er hann verðskuldað valinn maður leiksins," skrifaði Ívar Björgvinsson í skýrslunni eftir leikinn.
Kooistra kom frá HK í vetur og var Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar, spurður út í sóknarmanninn í viðtali eftir leikinn í gær.
„Hann hefur verið mjög öflugur, hann kom meiddur til okkar í vetur þannig við þurftum að byggja hann upp, koma honum í stand og inn í okkar spil. Hann er vaxandi með hverjum leiknum núna og er búinn að spila frábærlega í síðustu leikjum. Ég er gríðarlega ánægður með hans framlag, sem og hinna strákanna," sagði Maggi.
Á síðasta tímabili skoraði Kooistra tvö mörk í tíu deildarleikjum. Hann hefur líka verið öflugur í Mjólkurbikarnum á þessu tímabili, hefur skorað tvö mörk í tveimur leikjum.
Lengjudeild karla
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. Fylkir | 6 | 5 | 0 | 1 | 11 - 3 | +8 | 15 |
| 2. Afturelding | 6 | 4 | 1 | 1 | 17 - 12 | +5 | 13 |
| 3. HK | 6 | 4 | 0 | 2 | 13 - 9 | +4 | 12 |
| 4. Þróttur R. | 6 | 3 | 1 | 2 | 14 - 9 | +5 | 10 |
| 5. Grótta | 6 | 3 | 0 | 3 | 12 - 14 | -2 | 9 |
| 6. Njarðvík | 6 | 2 | 2 | 2 | 5 - 4 | +1 | 8 |
| 7. Grindavík | 6 | 1 | 4 | 1 | 7 - 7 | 0 | 7 |
| 8. ÍR | 6 | 2 | 1 | 3 | 15 - 16 | -1 | 7 |
| 9. Vestri | 6 | 2 | 1 | 3 | 10 - 15 | -5 | 7 |
| 10. Leiknir R. | 6 | 1 | 3 | 2 | 4 - 9 | -5 | 6 |
| 11. Ægir | 6 | 1 | 1 | 4 | 6 - 9 | -3 | 4 |
| 12. Völsungur | 6 | 0 | 2 | 4 | 2 - 9 | -7 | 2 |


