Fotbolti.net
28.06.13 - 06:00
Daníel Freyr Jónsson

Barcelona lánar Rafinha Alcantara til Celta Vigo (Staðfest)

Barcelona lánar Rafinha Alcantara til Celta Vigo (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Rafinha Alcantara, leikmaður Barcelona, hefur skrifað undir nýjan samning hjá félaginu og var á sama tíma lánaður til Celta Vigo.
Rafinha er 20 ára gamall og hefur leikið með B-liði Barcelona undanfarin tvö ár. Þar hefur hann leikið sem miðjumaður og skorað 20 mörk í 84 leikjum í næst efstu deild Spánar.

Hinn nýji samningur gildir til ársins 2016 og má hvaða lið sem er kaupa hann fyrir 30 milljónum evra.

Hann mun hinsvegar leika með Celta Vigo á næstu leiktíð, auk þess sem hann mun snúa aftur sem leikmaður aðalliðs Barcelona.

Rafinha er yngri bróðir Thiago Alcantara, sem leikur með Barcelona. Hann gæti þó verið á förum frá félaginu á næstu dögum til Manchester United.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.