Fotbolti.net
28.06.13 - 06:00
Daníel Freyr Jónsson

Jordi Amat til Swansea (Staðfest)

Jordi Amat.

Jordi Amat.

Canon

Mynd: Getty Images

Swansea hefur gengið frá kaupunum á varnarmanninum Jordi Amat frá spænska úrvalsdeildarliðinu Espanyol.
Amat, sem leikur í stöðu miðvarðar, skrifaði undir fjögurra ára samning hjá welska liðinu, en Swansea greiddi sem nemur um 2,5 milljónum punda fyrir hann.

Amat er 21 árs gamall og hefur verið undir smásjá Michael Laudrup, stjóra Swansea, undanfarin misseri. Hann þykir mikið efni og lék sinn fyrsta leik með Espanyol þegar hann var einungis 17 ára gamall.

Lék hann sem lánsmaður hjá Rayo Vallecano á síðustu leiktíð þar sem hann lék 27 leiki.

Hann er annar Spánverjinn sem gengur í raðir Swansea í sumar á eftir Jose Canas, sem kom frá Real Betis.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.