Fotbolti.net
28.06.17 - 21:57
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson

Sara Hrund: Sannkölluð sex stig

Auglýsing
Sara Hrund var ánægð með sigurinn í kvöld

Sara Hrund var ánægð með sigurinn í kvöld

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Hertz
Sara Hrund Helgadóttir var gríðarlega ánægð með sigur Grindavíkur gegn Fylki í Pepsi-deild kvenna í kvöld. Sigurinn var ákaflega mikilvægur.

<i>„Þetta voru sannkölluð sex stig eins og maður segir,\"</i> sagði Sara Hrund, leikmaður Grindavíkur.

Það var ljómandi gott veður í Grindavíkinni í kvöld, kominn tími til segja margir.

<i>„Síðustu leikir hafa verið rok og rigning þannig þetta var kærkomið og ótrúlega skemmtilegt að spila. Það bættist aðeins í stúkuna og gott veður þannig þetta gerist ekki betra.\"</i>

Grindavík komst yfir snemma í seinni hálfleik en Fylkiskonur jöfnuðu strax í næstu sókn.

<i>„Það var dálítil blaut tuska í andlitið en ég er samt ánægð með stelpurnar að hengja ekki haus við það og við héldum bara áfram og mér fannst við bara bæta í við það.\"</i>

Grindavík komst aftur yfir þegar rúmur hálftími var eftir af leiknum. Erfitt var að sjá hvort um væri að ræða sjálfsmark eða mark Elenu Brynjarsdóttur.

<i>„Ég hélt fyrst að boltinn hafi farið inn beint úr hornspyrnunni en svo slær markmaðurinn boltann út og mér fannst Elena klára þetta þá til þess að vera alveg örugg.\"</i>

Næsti leikur Grindavíkur er gegn Haukum. Þar má búast við hörkuleik en bæði lið eru í botnbaráttunnu, þrátt fyrir að staða Grindvíkinga líti töluvert betur út núna en fyrir leikinn í kvöld

<i>Algjörlega, við getum ekki beðið. Þetta eru leikirnir sem maður getur ekki beðið eftir og bara gaman að spila þessa leiki.\"</i>
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.