Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   þri 28. júní 2022 11:01
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Newcastle ætlar að blanda sér í baráttuna um Raphinha
Mynd: EPA
Síðustu daga hefur verið fjallað um áhuga Arsenal á brasilíska vængmanninum Raphinha sem er samningsbundinn Leeds á Englandi.

Í vetur var þá talsvert fjallað um áhuga Barcelona á leikmanninum sem átti frábært tímabil og hjálpaði Leeds að halda sæti sínu í úrvalsdeildinni.

Samkvæmt heimildum Mirror ætlar Newcastle að blanda sér í baráttuna um að fá Raphinha í sínar raðir og hefur þegar haft samband við Leeds vegna leikmannsins.

Newcastle hefur þegar krækt í Matt Targett og Nick Pope í sumar og þá styttist í að félagið kynni Sven Botman sem nýjan leikmann félagsins.
Athugasemdir
banner
banner
banner