Fotbolti.net
28.07.19 - 19:59
Kristófer Jónsson

Óli Kristjáns: Hef ekki hugmynd um hvort sæti mitt sé að hitna

Auglýsing
Óli Kristjáns var svekktur með tapið.

Óli Kristjáns var svekktur með tapið.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ólafur Kristjánsson, þjálfari FH, var að vonum svekktur eftir 1-0 tap sinna manna gegn KA í 14.umferð Pepsi Max-deildar karla í dag.

„Það eru vonbrigði að tapa leiknum í ljósi þess að mér fannst það sem að leikmenn leggja í leikinn allt annað en í síðustu umferð á móti HK. Við höfðum yfirburði í fyrri hálfleik sem að við nýttum okkur ekki." sagði Óli eftir leikinn.
FH-ingar voru mun meira með boltann í leiknum en varnarlína KA var þétt og áttu gestirnir frá Hafnarfirði í tómum vandræðum með að skapa sér færi. Sóknarleikur liðsins hefur verið mikið til umræðu undanfarið en FH hefur einungis skorað þrjú mörk í síðustu fimm leikjum.

„Sóknarleikurinn í dag var betri en á móti HK en það er kannski ekkert að marka það. Síðan talar maður um að KA hafi unnið þennan leik og sóknarleikurinn þeirra hafi verið góður. Þú þarft ekkert alltaf mikið en við þurfum það greinilega þessa daganna."

Staða Ólafs sem þjálfari FH hefur verið til umræðu uppá síðkastið. Óli vildi lítið ræða sína stöðu þegar að fréttaritari spurði hvort að hann héldi að starf hans væri í hættu.

„Ég hef ekki hugmynd um það." sagði Óli spurður um stöðuna.

Nánar er rætt við Óla í spilaranum að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.